Íslenska  


Ný-fiskur ehf.
Hafnargötu 1, 245 Sandgerði
Sími: 420 7600, Fax: 423 7680



Þú ert hér > Ný-Fiskur > Fréttir

Fréttir

9.5.2008 11:05:07
Ný vinnslulína tekin í notkun


Gunnar Bragi Guðmundsson, aðstoðar framkvæmdastjóri Ný-Fisks með kynningu á nýju vinnslulínunni

Valka, ungt íslenskt hátæknifyrirtæki og Ný-Fiskur kynntu nú á dögunum nýja vinnslulínu í húsakynnum Ný-Fisks sem er hönnuð og smíðuð af Völku.

Hér að neðan eru upplýsingar um ferli á þróun á búnaðinum ásamt myndum:

Íslenskt fyrirtæki þróar byltingarkennda tækni
Ný nákvæm vinnslulína

  • Ný vinnslulína bætir nýtingu og eykur nákvæmni
  • Leiðandi fyrirtæki í fiskvinnslu tekur framúrskarandi tækni í notkun
  • Valka ehf. sýnir fram á gæði framleiðslu sinnar
  • Hagkvæmni í íslenskum fiskiðnaði eykst enn
  • Heimsmeistararnir í gervigreind draga margfalt úr yfirvigt

Valka, sem er ungt íslenskt hátæknifyrirtæki í framleiðslu tækja fyrir matvælaiðnað, hefur sett upp nýja flokkunar- og pökkunarlínu fyrir ferskan fisk hjá Ný-Fiski í Sandgerði. Ný-Fiskur er leiðandi í pökkun á ferskum fiski á Íslandi og hefur náð frábærum árangri í vinnslu og markaðssetningu erlendis á þeim afurðum.


Á myndinni sést vinnslulínan hjá Ný-Fiski í Sandgerði ásamt starfsmanni
sem vinnur við að meta gæði fisksins og að raða inn á flokkarann.

Vinnslulínan er hvort tveggja nákvæmari og sjálfvirkari en áður hefur þekkst og bætir hráefnismeðferð og hráefnisnýtingu að sama skapi. Vinnslulínan pakkar með sjálfvirkum hætti ferskum flökum og flakabitum í umbúðir af fastri þyngd af mikilli nákvæmni. Þessari nýju tækni fylgir umtalsverð hagræðing. Vinnslulínan samanstendur af Valka RapidAligner – sem í senn flokkar, velur saman bita og raðar – og innmötunarbúnaði fyrir fiskinn og frauðkassa sem hráefninu er pakkað í fyrir útflutning.

Þróun á búnaðinum hófst í upphafi árs 2006 og var þá þegar sótt um einkaleyfi. Það hefur verið gefið út á Íslandi og er nú í alþjóðlegu umsóknarferli. RapidAligner vélin var þróuð af Völku í samstarfi við Ný-Fisk og Háskólann í Reykjavík með tilstyrk AVS-sjóðsins og Tækniþróunarsjóðs.


Fiskurinn er lagður mjúklega á vog áður en hann er lagður inn í vélina

Hinni viðkvæmu ýsu pakkað sjálfvirkt
Nú, þegar fiskverð hefur verið að hækka mjög mikið bæði hér heima og erlendis, er mikilvægara en nokkru sinni að vinnslubúnaður fari vel með hráefnið. Fisktegundir eru misviðkvæmar og er þorskur og þó sérstaklega ýsa mjög viðkvæmar tegundir. Því er ýsu sem selja skal ferska nær undantekningalaust handpakkað í dag. Nákvæmni nýju línunnar er hinsvegar slík að vandræðalaust er að pakka ýsu með sjálfvirkum hætti. Það getur aukið mjög á arðsemi útflutnings á ferskri ýsu.


Fiskinum er raðað snyrtilega í frauðkassana án þess að mannshöndin komi þar nálægt

Meiri sjálfvirkni en áður hefur sést
Núverandi vinnulag er með þeim hætti að flokkunarbúnaður skefur fiskinn gjarnan af bandi í hólf. Þá er heildarskammtinum sleppt úr hólfinu að starfsmanni, sem raðar fiskinum í kassana. Gallar þessa fyrirkomulags eru helst þeir að fiskurinn getur skemmst við þessa meðhöndlun og missir vökva, sem hvort tveggja rýrir nýtni og takmarkar nákvæmni í pökkuninni. Þar sem RapidAligner flokkarinn leggur fiskinn varlega beint í umbúðirnar sparast öll aukameðhöndlun og handtök við að raða fiskinum í kassa.


Meiri nákvæmni
Einn helsti kostur flokkarans er að nákvæmni í pökkun er meiri en unnt er að ná í öðrum flokkunarbúnaði sem til er á markaðnum. Þeim árangri er auk þess náð með færri s.k. útkasthliðum en áður hefur þekkst. Galdurinn felst í því að RapidAligner  getur geymt allt að 16 flakabita af þekktri þyngd. Með því er fullkomnari bestun samvals á bitum en ef aðeins eitt stykki er þekkt, eins og í núverandi flokkunarbúnaði.
Að þessu búnu blasir enn við að draga, sem kostur er, úr yfirvigt hverrar sölueiningar. Í þeim efnum hefur samstarf við Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík skipt sköpum. Setrið hlaut nýlega heimsmeistaratitil í gervigreind og leggur nú aukna áherslu á samstarf við iðnfyrirtæki. Dr. Yngvi Björnsson hefur haft veg og vanda af þróun aðlögunarhæfs algríms sem útrýmir yfirvigtinni. Hún er vitaskuld eitur í beinum hvers vinnslumanns því yfirvigt er gefin vara.

Línuritið sýnir yfirvigt við pökkun á ýsuhnökkum í 3 kg umbúðir með RapidAligner og samanburð við dæmigerða niðurstöðu í handpökkun. Yfirvigtin er einungis 3g eða 0,1% með RapidAligner, Algeng yfirvigt í handpökkun er gjarnan um hálft stykki ef starfsmanninum er ekki gefin mikill tími til að skipta á stykkjum, í þessu tilfelli væri hún um 70g eða um 2,2%. Því er ljóst að unnt að ná verulegum árangri í að auka verðmæti fisksins með nýja flokkaranum.


Meiri möguleikar á minna svæði
Afköst flokkarans eru rúmlega 60 stykki á mínútu og hefur hann því vel undan einni flökunarvél. Auk þess að velja saman bita í kassa, flokkar hann fiskinn eftir stærð og gæðum. Þar sem einungis þarf 2-4 útkasthlið fyrir hvern flokk er unnt að velja saman í kassa af mikilli nákvæmni í mörgum flokkum samtímis án þess að flokkarinn verði óhóflegur að lengd. Unnt er að aðlaga flokkarann vinnslunni á hverjum stað með því að velja fjölda hliða. Auk þess má nýta flokkarann til að raða tilteknum afurðum beint á færiband, t.d. inn á lausfrysti. Þannig getur flokkarinn pakkað besta fiskinum ferskum í flug en matað sjálfvirkt inn á lausfrysti fiski af minni gæðum.


Meðhöndlun pantana
Ein af hindrunum þess að nýta sjálfvirkan flokkunarbúnað við pökkun á ferskum fiskafurðum er einstaklega stuttur afgreiðslutími – allt niður í nokkrar klukkustundir -  tíðar breytingar á pöntunum og stuttar framleiðslulotur. Aukin sjálfvirkni í meðhöndlun pantana og sjálfvirkni í flutningi á pöntunarupplýsingum milli kaupanda fisksins, sölumanna og framleiðslu er því forsenda þess að unnt sé að sjálfvirknivæða pökkunina. Því hefur Valka þróað hugbúnaðinn RapidTrade, sem hámarkar þá sjálfvirkni sem unnt er að ná í meðferð pantana frá viðskiptavinum. RapidTrade var upphaflega þróaður í samstarfi við HB Granda og síðar enn frekar með Ný-fiski og Sjófiski. Hann er þegar búinn að vera í notkun í HB Granda í tæp tvö ár og þróun hans bæði fyrir útflutning og útkeyrslu er mjög langt komin.

 



Gunnar Bragi Guðmundsson
aðstoðarframkvæmdastjóri Ný-Fisks ehf

Við hjá Ný-Fiski höfum haft tækifæri að vera með í þróun og prófun á hinni nýju Völku RapidAligner pökkunarvél fyrir ferskan fisk. Þessi vél er gjörbylting í pökkun á fiski þar sem meðferð hráefnisins og rétt vigt til kaupandans eru grunn forsendur árangurs. Kostur vélarinnar eru margir og má þar nefna:

  • Nákvæmni í vigtun upp á 0,2%
  • Afurðirnar eru lagðar mjúklega í kassann svo varan verður ekki fyrir hnjaski og skapar það okkur þann einstaka möguleika að geta pakkað ýsu í vélinni en við höfum verið að auka vinnslu á henni í kjölfar niðurskurðar í þorskinum
  • Hægt er að vinna með margar afurðategundir í einu
  • Sjálfvirk stjórnun þar sem pantanir berast beint frá viðskiptavinum í vélina
  • Vinnuvænt umhverfi fyrir þá sem raða í vélina og auðveld stjórnun vélarinnar

Það er okkur í Nýfiski sérstakur heiður að vera fyrstir í heiminum til að eignast RapidAligner flokkara fyrir ferskan fisk frá Völku.

Við óskum Völku velgegni í framtíðinni þar sem væntanlegir viðskiptavinir verða ekki fyrir vonbrigðum með hágæða vörur og frábæra þjónustu.


 


Næstu skref
Herferð til kynningar á RapidAligner flokkaranum er að hefjast á Íslandi og erlendis. Hafa viðbrögð hjá fiskvinnslum þegar verið mjög jákvæð. Helstu möguleikar í upphafi eru í pökkun á hvítfiski og laxi.

Þar sem RapidAligner flokkarinn byggir á alveg nýrri tækni eru frekari þróunarmöguleikar mjög miklir. Hyggur Valka á frekari þróun tækninnar á næstunni m.a. við flokkun og pökkun á humri og til notkunar við pökkun í neytendapakkningar.

Valka sérhæfir sig í þróun á sjálfvirknilausnum fyrir fiskvinnslu sem hafa það að meginmarkmiði að auka gæði og bæta nýtingu hráefnisins og skila þannig fiskvinnslunni auknu virði fyrir afurðirnar.

Ný-fiskur sérhæfir sig í markaðssetningu og sölu á hágæða fiski sem verðskuldar hæsta verð. Það er helsta stolt fyrirtækisins að bjóða fisk til sölu á öllum helstu mörkuðum heimsins innan við einum sólarhring eftir að hann var veiddur við Íslandsstrendur.

Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík, sem stofnað var árið 2005, stundar rannsóknir á ýmsum sviðum gervigreindar, með fjögur kjarnasvið: Gervigreind í sýndarheimum og tölvuleikjum, leit og áætlanagerð, víxlverkun og samskipti í rauntíma og náttúruleg samskipti manns og vélar (tal, sjón, heyrn, skilningur).

 

 




Til baka

Tónaflóð veflausnir